Description
Við höldum á vit ævintýra og göngum þessa fornu þjóðleið, frá Skorradal og yfir í botn Hvalfjarðar. Á leið okkar fáum við fallegt útsýni yfir Skorradalinn, fjöllin í kring eins og Hvalfell og Botnssúlurnar og loks Hvalfjörðinn í öllu sínu veldi.
Um kvöldferð er að ræða þar sem stefnan er að sett á að njóta sem mest og taka myndir til minninga. Rútan fer frá Reykjavík kl. 16 og hefst gangan um klukkustund siðar.
Gangan er um 14km löng með 500m hækkun. Hún tekur okkur um 6 klst. Landslagið er af öllum toga, frá lausri mold til grófari steina. Góðir gönguskór eru því vænlegir til vinnings þennan daginn. Leiðin hentar öllum þeim sem treysta sér í langa kvöldgöngu, hækkun er jöfn á fótinn sem og lækkunin niður í Hvalfjörð.
ATH aðeins 16 sæti í boði!
Nánari upplýsingar eru veittar með tölvupósti á netfanginu info@afstad.com eða í síma okkar 790 2800.
Innifalið:
– Leiðsögn
– Rúta
Verð : 15.900kr.
Greitt er 7.000kr. í staðfestingargjald við skráningu og telst sæti vera frátekið þá
Greitt er 8.900kr. í lokagreiðslu eigi síðar en fjórum vikum fyrir brottför.
Sendur er reikningur á þátttakendur og telst sæti frátekið þegar hann er greiddur.
Nánari upplýsingar um útbúnað, fyrirkomulag og dagskrá eru sendar með staðfestingarpósti.
Vertu í bandi – spurðu – komdu með!