Nepal – Grunnbúðir Everest 2025 (haust) ásamt Lobuche tindi 6.119m

From: 499.000 kr.

2025 dagsetningar:
– 17. október – 1. nóvember (haust)

Category:

Description

Grunnbúðir Everest og hinn magnaði 6.119m tindur Lobuche, hér er sannkölluð ævintýraferð framundan!

Í þessari ferð göngum við upp í Grunnbúðir Everest ásamt því að toppa hinn skemmtilega og krefjandi tind Lobuche sem stendur í 6.119m hæð.

Að ganga upp Khumbu dalinn, upplifa menninguna og mannlífið og auðvitað öll háu fjöllin í kring er mögnuð upplifun og ferðalag sem seint gleymist. Rólega fikrum við okkur hærra og hærra þangað til að við náum grunnbúðum Everest, með öllu því magnaða útsýni sem þeim fylgir. Jökullinn, fjöllin, sólarupprásin…við fáum þetta allt beint í æð! Til viðbótar við þetta munum við klífa tind Lobuche sem er 6.119m hár og býður upp á stórkostlegt útsýni yfir þau fjöll sem verða búin að heilla okkur í marga daga áður. Lobuche er göngufjall en þó bratt og mun því reyna að þol og þrek. Gengið er í línum og notaður jöklaútbúnaður sem kennt verður sérstaklega á.

Ferðin okkar hefst í Kathmandu þar sem við eyðum einum degi áður en við fljúgum upp í fjöllin. Á leiðinni aftur til baka fáum við auka dag í Kathmandu sem við nýtum í skoðunarferðir og upplifun áður en flogið verður heim til Íslands. Ferðin er 18 dagar í heild sinni í Nepal og gera má ráð fyrir heilum degi fyrir og eftir ferð í ferðalag frá og til Íslands aftur.

Göngudagarnir eru mislangir (sjá dagskrá hér að neðan) og gengið er aðeins með dagpoka á milli staða. Farangurinn verður trússaður á jakuxum og burðarmönnum. Dagarnir eru settir upp með það að markmiði að njóta en ekki þjóta. Þegar gengið verður á tind Lobuche verður gist tvær nætur í háfjallatjöldum með fullri þjónustu.

Ferð þessi er fyrir þá sem þyrstir í ný ævintýri og vilja skoða þetta magnaða svæði sem oft er kennt við Everest í daglegu tali. Þó svo að göngudagarnir séu ekki langir né bakpokinn þungur þá munu þeir taka í sökum hæðar sem fer hækkandi með hverjum degi. Þátttakendur þurfa að vera í líkamlegu formi, ganga á fjöll reglulega fyrir brottför og æfa sig þannig. Besta æfingin er jú að ganga á fjöll. Gangan á Lobuche krefst svo góðs úthalds og lágmarksþekkingar á jöklaútbúnað, brodda, exi, línu o.fl. Þetta verður farið yfir bæði hér á landi í undirbúningsferð okkar á Sólheimajökul en einnig úti í Nepal með klifurleiðsögumönnum okkar.

 

Dagskráin er sem hér segir:

Dagur 1 (17. október)
Komið til Kathmandu og gist á glæsilegu 5 stjörnu hóteli.

Dagur 2 (18. október)
Kathmandu dagur sem verður nýttur í helstu skoðunarferðir borgarinnar…eftir morgunmat á hótelinu að sjálfsögðu. Við förum í Pashupatinath musterið og skoðum síðan Boudhanath stupa og endum daginn á Patan Durbar torginu. Þessi dagur verður vel nýttur og munum við njóta leiðsagnar heimafólks sem ekur okkur um og segir frá.
Morgunmatur.

Dagur 3 (19. október)
Við tökum daginn snemma til að ná flugi til Lukla (2.800m) þar sem gangan okkar hefst formlega. Gengið NIÐUR til Phakding (2.650m).
4klst – 8km – 300m lækkun.
Morgunmatur, hádegismatur, kvöldmatur.

Dagur 4 (20. október)
Göngum í dag til höfuðstaðs Sjerpa, Namche (3.400m). Alvöru dagur með miklu útsýni og mörgum brekkum.
6klst – 8km – 800m hækkun.
Morgunmatur, hádegismatur, kvöldmatur.

Dagur 5 (21. október)
Í dag göngum við upp í Everest View Hotel (3.800m) þar sem við fáum okkur te og sjáum Everest í fyrsta sinn. Dagurinn er rólegur og komum við aftur niður til Namche. Kannski gefst okkur tími til að grípa einn háfjalla latte og bakkelsi.
5klst – 6km – 400m hækkun.
Morgunmatur, hádegismatur, kvöldmatur.

Dagur 6 (22. október)
Þá kveðjum við Namche og höldum til Tyangboche (3.860m). Göngum í hlíðum fjallanna og í gegnum skóglendi. Þetta verður brattur dagur en útsýnið mikið að kvöldi til.
6klst – 11km – 700m hækkun.
Morgunmatur, hádegismatur, kvöldmatur.

Dagur 7 (23. október)
Við kveðjum Tyangboche og höldum áleiðis til Dingboche (4.300m) þar sem við ætlum að eyða tveimur dögum. Hér er franskt bakarí!
6klst – 11km – 700m hækkun.
Morgunmatur, hádegismatur, kvöldmatur.

Dagur 8 (24. október)
Hvíldardagur og við nýtum hann vel til að aðlagast hæðinni og förum í góða göngu. Te, matur og almenn hvíld.
Morgunmatur, hádegismatur, kvöldmatur.

Dagur 9 (25. október)
Höldum til Lobuche (4.900m) og nú fer landslagið að breytast, fjöllinn fara að gnæfa almennilega yfir okkur og tindarnir að blasa við.
6klst – 9km – 600m hækkun.
Morgunmatur, hádegismatur, kvöldmatur.

Dagur 10 (26. október)
Þessi fer í minningarbækurnar okkar. Í dag göngum við frá Lobuche yfir í bæinn Gorak Shep (5.100m) þar sem við borðum hádegismat og höldum áfram inn í grunnbúðir Everest! (5.300m) Þetta verður langur dagur en þreytan gleymist fljótt þegar útsýnið og takmarkið loks blasir við manni. Gerið vasaklútana klára.
8klst – 11km – 400m hækkun.
Morgunmatur, hádegismatur, kvöldmatur.

Dagur 11 (27. október)
Við tökum daginn snemma og förum í göngu upp á Kala Patthar (5.600m) og horfum á sólina koma upp yfir Everest. Þetta er mögnuð stund. Eftir allar myndatökurnar komum við aftur niður í Gorak Shep, borðum seinni morgunmat og höldum svo niður í grunnbúðir næsta verkefnis okkar, Lobuche tinds! Við förum rólega yfir grýtt landslag þangað til að við komum að tjaldbúðum okkar og gerum klárt fyrir komandi daga.
6klst – 8km
Morgunmatur, hádegismatur, kvöldmatur.

Dagur 12 (28. október)
Í dag höldum við upp í efri búðir (5.400m) Lobuche fjalls. Leiðin er grýtt og brekkur brattar upp og niður. Við endum daginn á snævi þöktum stígum og gistum aðra nótt í tjöldum. Svefninn verður þó ekki langur þar sem við stefnum á alpa start á toppinn eða upp úr miðnætti.
4klst
Morgunmatur, hádegismatur, kvöldmatur.

Dagur 13 (29. október)
Toppdagur! Við hefjum hann snemma til að ná sem besta veðri og útsýni af toppnum. Nóttin verður hæg og róleg til að hámarka vellíðan á leiðinni upp. Gera má ráð fyrir umferð upp þar sem um mjög vinsælan tind er að ræða. Eftir að toppi verður náð og myndir teknar munum við halda niður á leið, alla leið í grunnbúðir fjallsins, borða þar hádegismat og fagna góðum degi. Svo höldum við áfram niður með lungun full af súrefni, alla leið til Pheriche þar sem þessi langi dagur endar á kvöldmat og góðu rúmi.
(Næsti dagur (14) er hafður til vara vegna veðurs og því getur dagskrá færst til um einn dag)
9klst – 14km
Morgunmatur, hádegismatur, kvöldmatur.

Dagur 14 (30. október)
Með lungun full af súrefni höldum við niður áfram, til Namche í dag. Dagarnir lengjast en hæðin lækkar hratt.
7klst – 20km
Morgunmatur, hádegismatur, kvöldmatur.

Dagur 15 (31. október)
Við kveðjum Namche og höldum niður til Lukla. Það er magnað hvað brekkurnar eru mun auðveldari á leiðinni niður. Loksins heit sturta!
7klst – 16km
Morgunmatur, hádegismatur, kvöldmatur.

Dagur 16 (1. nóvember)
Ferðadagur í dag, við fljúgum frá Lukla til Kathmandu. Heit sturta, drykkur á barnum og slökun. Kannski ein pizza líka…
Morgunmatur.

Dagur 17 (2. nóvember)
Frjáls dagur í Kathmandu sem hægt verður að nýta í skoðunarferð eða verslunarferð. Um kvöldið munum við sameinast í kvöldmat með nepölskum leiðsögumönnum okkar og skála fyrir góðri ferð.
Morgunmatur og kvöldmatur.

Dagur 18 (3. nóvember)
Kveðjum borgina og höldum heim á leið til Íslands.
Morgunmatur.

 

Innifalið:
– Íslensk og Nepölsk fararstjórn
– Klifurleiðsögumenn á Lobuche (2:1 hlutfall)
– Gisting skv. ferðaplani í tveggja manna herbergjum
– Ferðir til og frá flugvöllum
– Innanlandsflug til og frá Ramechhap
– Skoðunardagur með leiðsögn í Kathmandu
– Gisting og matur á göngu að nepölskum sið
– Uppsett tjöld ásamt öðrum nauðsynlegum útbúnaði í grunnbúðum
– Sameiginlegur kvöldmatur á degi 15 í Kathmandu
– Trúss á farangri á milli gististaða á göngu
– Þjóðgarðsleyfi + klifurleyfi fyrir Lobuche + úrgangs- og ruslagjald
– Undirbúningsfundur + 2 göngur á Íslandi + 1 æfingaferð á Sólheimajökli

Ekki innifalið:
– Flug til og frá Kathmandu – Af Stað mun bjóða upp á ferðatillögu fyrir þá sem vilja fljúga saman
– Vegabréfsáritun (Visa) í Nepal (50 USD)
– Þjórfé á göngu fyrir burðarmenn , fararstjóra og klifurleiðsögumenn
– Tryggingar við ferðina*
– Matur og drykkir í Kathmandu sem ekki eru tilgreindir sérstaklega
– Annar matur og drykkir á göngu sem ekki tilgreindir eru í dagskrá, s.s. gosdrykkir, vatn og áfengir drykkir
– Snarl og millimál á göngu
– Önnur þjónusta á göngu, s.s. WiFi, sturta, þvottur o.fl.
– Persónulegur klifurútbúnaður s.s axir, jöklabroddar, belti, hjálmur o.fl. (hægt að leigja í Kathmandu)

Nánari upplýsingar eru veittar með tölvupósti á netfanginu info@afstad.com eða í síma okkar 790 2800.

Ath. takmarkaður sætafjöldi er í þessa ferð.

Verð : 499.000kr.

Greitt er 89.000kr. í staðfestingargjald við skráningu og telst sætið vera frátekið þá.
Greitt er 410.000kr. í lokagreiðslu eigi síðar en sex vikum fyrir brottför. Hægt er að skipta lokagreiðslu upp í allt að 5 greiðslur. Sendir eru reikningar á þátttakendur og greitt er með millifærslu.
Nánari upplýsingar um útbúnað, fyrirkomulag og dagskrá eru sendar með staðfestingarpósti.

Ferðaskilmálar

*Ferðatrygging, forfallatrygging, slysa- og sjúkdómatrygging ásamt neyðartryggingu (valkvætt) Global Rescue. Hægt er að fá þessar tryggingar hjá sínu tryggingafélagi en mikilvægt er að tilgreina hvert ferðinni sé heitið. Af Stað býður upp á ráðgjöf hvað þetta varðar.

Vertu í bandi – spurðu – komdu með!