Description
Þessi skemmtilega leið sem slegið hefur í gegn ár eftir ár leiðir göngufólk um fallega stiga og býður upp á leyndardómsfullt útsýni. Gengið er frá bílastæðinu við Reykjadalinn, um Grænsdal og alla leið upp á Ölkelduhnúk þar sem við blasir útsýni yfir Reykjadalinn sjálfan. Eftir það er gengið meðfram Hrómundartindi, ofan í fallegu gili sem mun koma skemmtilega á óvart. Leiðin liggur í átt að Nesjavöllum meðfram Ölfusvatnsá þar sem rútan mun bíða okkar.
Um kvöldferð er að ræða þar sem stefnan er að sett á að njóta sem mest og taka myndir til minninga. Rútan fer frá Reykjavík kl. 16 og hefst gangan um klukkustund siðar.
Gangan er um 16km löng með 500m hækkun. Hún tekur okkur um 6 klst. Landslagið er af öllum toga, frá lausri mold til grófari steina. Góðir gönguskór eru því vænlegir til vinnings þennan daginn. Leiðin hentar öllum þeim sem treysta sér í langa kvöldgöngu, hækkunin er að mestu leyti tekin út í byrjun göngu eða á fyrstu 4-5 km.
ATH aðeins 16 sæti í boði!
Nánari upplýsingar eru veittar með tölvupósti á netfanginu info@afstad.com eða í síma okkar 790 2800.
Innifalið:
– Leiðsögn
– Rúta
Verð : 15.900kr.
Greitt er 7.000kr. í staðfestingargjald við skráningu og telst sæti vera frátekið þá
Greitt er 8.900kr. í lokagreiðslu eigi síðar en fjórum vikum fyrir brottför.
Sendur er reikningur á þátttakendur og telst sæti frátekið þegar hann er greiddur.
Nánari upplýsingar um útbúnað, fyrirkomulag og dagskrá eru sendar með staðfestingarpósti.
Vertu í bandi – spurðu – komdu með!